Kjör og starfsumhverfi fræðafólks og háskólamenntaðra sérfræðinga
Hlutverk Greiningarsjóðs háskólafélaganna er að safna gögnum sem snúa að kjörum og starfsumhverfi akademísks starfsfólks og háskólamenntaðra sérfræðinga og gera á þeim greiningar. Greiningarnar eru liður í að standa vörð um hagsmuni félagsfólks FÍN, FH, FHA og FPR.

Fréttir & fróðleikur
Að læra meira og meira..
Fjárfesting í auknu námi leiðir til jákvæðrar þróunar á ýmsa vegu. Ávinningurinn skilar sér til háskólasamfélagsins, atvinnulífsins og samfélagsins í heild sinni. Ávinningur þeirra einstaklinga sem læra meira og meira er aftur á móti óskýr. Á síðunni með fréttum og greinum er ýmislegt dregið fram um raunveruleg kjör og vinnuumhverfi þeirra sem veljast í langa mennta- og skólagöngu.
- Þróun launa í samanburði við samfélagið
- Að lenda í fjárhagskröggum
- Viðhorf félagsmanna til kjaramála og fyrirkomulags
Þetta og margt annað má sjá í þessum greinarkornum.





